Nú held ég að heimurinn sé endanlega farinn til fjandans. Eða allavega Ísland. Allir ímyndandi sér ísbirni við hvert fótmál og bensínið hækkar sem aldrei fyrr. Krónan í frjálsu falli - eða var það allavega og það er ekki búandi, vinnandi, fljúgandi né keyrandi á landinu lengur.
Og svo annar ísbjörn drepinn! Af hverju var greyið drepið þegar hann ætlaði út í sjó? Mannaparnir voru jú með þyrlur til taks og hefðu getað fylgst með honum ef hann álpaðist upp á land annarsstaðar. Greyið ætlaði bara heim til Grænlands af því það var búið að myrða bangsapabba og bangsamamma sá fram á að hún hlyti sömu örlög og hann. Af hverju eru ógeðslegu mávarnir ekki drepnir eða útigangskettirnir? Alveg viðbjóðsleg dýr og kettir geta nú alveg klórað úr manni augun.
Svona í lokin þá verð ég bara að segja að þetta blessaða búr sem kom frá Danaveldi er nú bara grín. Ég hefði getað smíðað svona búr! Eru Íslendingar virkilega svona illa staddir að þeir hafa ekki efni á að púsla saman einu svona ræfilsbúri? Öss segi ég nú bara...
Almáttugur hvað ég nenni ekki að skrifa hérna *sigh* Eníhú, þar sem ég er byrjuð á því þá get ég alveg eins látið móðinn mása. Það er allt að fara til fjandans á þessu landi hérna; óðaverðbólga, jarðskjálftar, ísbjörn, verðhækkanir og bensínhækkanir. Fullt af vandamálum EN vandamálin eru til þess að leysa þau!
Ísbjarnarvandamálið: Það var nú algjör óþarfi að skjóta grey ísbjörninn. Það hefði vel verið hægt að planta honum í Húsdýragarðinn nú eða setja á fót sædýrasafni en ég man nú tímanna tvenna þegar það var í Hafnarfirði í den. Svo hefði verið hægt að bæta við selum, rostungum og svoleiðis kvikindum með tíð og tíma.
Hin vandamálin eru okkur sjálfum að kenna - já og bönkunum. Og Bandaríkjamönnum. Fyrir utan jarðskjálftana auðvitað, þeir eru guði að kenna. En þar sem ég trúi ekki á guð þá eru þeir jarðvísindalegum hræringum að kenna.
En við gætum leyst þessi efnahagslegu vandamál hér á landi með því að loka Íslandi og dreifa okkur á Norðurlöndin. Ætli frændur okkar í Noregi og Danmörku yrðu ekki glaðir að taka við okkur aftur? Allavega yrði ég glöð að komast aftur til frænda minna í Danaveldi.
Note: Blogg þetta ber ekki að taka alvarlega þar sem ég er undir áhrifum (ó)lyfja...
Þetta heilsuátak mitt er ekki að ganga.. Mátti ekki hlaupa í viku skv. læknisráði og þá sökk ég aftur í viðjar nammisins og kóksins. Mér er alveg sama þótt ég sé með smá bumbu og enga vöðva...*grenj* Og samkvæmt teljaranum þá eru fleiri en Overbo og Gunna sem skoða hérna. Kommentahrædda fólkið: Takið þetta til ykkar:
Stjörnuspá 12. maí 2008 VATNSBERI 20. janúar - 18. Febrúar Þú einbeitir þér að heilsunni og hugsunin fer í hringi. Allt það jákvæða sem þú framkvæmir í vinnunni og sambandinu skilar sér í betri heilsu.
Stjörnuspekingurinn les hugsanir! Einmitt það sem ég byrjaði á í dag. Nú verður Overbo stolt af mér! Ég slysaðist nefnilega á vigtina í dag (á ekki vigt, framkvæmdi þetta voðaverk heima hjá móður minni) og nú er svo komið að kókinu verður skipt út fyrir vatn og súkkulaðinu fyrir epli og appelsínur...
Mér þætti vænt um að vita hverjir skoða síðuna því mér hefur láðst að gefa upp þetta nýja lén og það eru einhvurjir að læðupokast hérna. Nóg að skrifa bara BÚ eða eitthvað í athugasemdir, er ekkert að fara fram á ævisögu ykkar.
Þyrnirós er vöknuð. Skólinn framundan. Ágætiseinkunnir að baki. 7-8-9. Get þakkað djammbindindinu það. Djammbindindi lokið. Stelpudjamm á morgun hjá Overbo. Hún hótar að birta myndir af mér í annarlegu ástandi ef ég mæti ekki. Ég mæti. Edrú. Ætla ekki í SingStar. Over and out.
Ég, Sid Skorrdal Waage, er laus úr viðjum lærdómsins (a.m.k fram yfir áramót). Ætla að fagna þessum merka áfanga með því að sofa í heila öld. Vekið mig árið 2107..
Ónei!! Enn eitt tapið hjá íslenska landsliðinu *kaldhæðinn vonbrigðarsvipur*
Á ekki að skella skuldinni á þjálfarann as usual og kannski bara dreka hann? Hvernig væri nú bara að kenna (ó)færni landsliðsmanna um síendurtekin töp liðsins? Legg til að karlalandsliðið verði lagt niður og að kvennalandsliðið komi alfarið í þeirra stað. Þær eru allavega fjandanum betri. Þið megið alveg saka mig um ættjarðarsvik, mér er alveg sama þar sem ég er hætt að halda með íslenska karlalandsliðinu. Frá og með deginum í gær hélt ég með Dönum.
Er í vondu skapi þannig að það er eins gott þið haldið ykkur á mottunni í athugasemdarkerfinu (þið þessar þrjár hræður sem lesið þetta skítablogg).
"Samkvæmt því sem fram kemur í grein sem birt er í breska tímaritinu British Journal of Dermatology stuðlar öll glúkósamyndun í líkamanum að öldrun húðarinnar þar sem glúkósi í blóði tengist prótínum og myndar þar með mólekúl sem ganga undir nafninu AGE. Fjölgun AGE mólekúla leiðir hins vegar til fækkunar annarra próteina og þá sérstaklega kollagena og límgjafa sem stuðla að teygjanleika húðarinnar. Þetta kemur fram á fréttavef CNN. Húðsjúkdómafræðingurinn Dr. Darren Casey, segir að þó sykurneysla valdi mikilli glúkósamyndun hafi það þó mun minni áhrif á öldrun húðarinnar en sól og reykingar. Þá ráðleggur hann öllum þeim sem vilja vinna gegn öldrunarmerkjum í húð sinni að neyta þráavarnarefna og C-vítamína í tyggjanlegu formi."
Hvaða andskotans anti-nammifréttir eru þetta alltaf á mbl.is? Er farin að hallast að því að það sé samsæri í gangi um að fá mig til að hætta að borða nammi... En ég mun eigi bugast, frekar fer ég undir græna torfu 10-15 árum fyrr sem hrukkóttur fitukeppur heldur en að hætta að borða þessa lífsfyllingu.
En þarna er nú líka minnst á reykingar og enn og aftur virðist vera hollara að borða nammi en reykja (reeeally..)
Og svona í lokin þá er ég bara ekki með eina einustu hrukku, lít út eins og tvítug skátastelpa. FCA2B3E084D91309F88450E5659A74AD
Þessari síðu ber ekki að taka alvarlega (nema um annað sé getið) og ef þið eruð með auðsæranlega blygðunarkennd þá ráðlegg ég ykkur að halda ykkur á disney.com.
Ég vil engin skítköst í gestabók/athugasemdir ellegar mun ég elta ykkur uppi (með hjálp IP) og berja ykkur :P
Ég áskil mér rétt að breyta þessum skilmála fyrirvaralaust.
FYI
Nafn: Sid
Staður: Reykjavík
Atvinna: Láglaunaður leikskólastarfsmaður og þriggja barna móðir